Harry Kane fyrirliði enska landsliðsins hefur keypt aðalauglýsinguna framan á búningum enska D-deildarfélagsins Leyton Orient.
Kane lék sem lánsmaður hjá Leyton Orient 2011 og skoraði þá 5 mörk í 18 leikjum.
Framan á aðalbúningi Leyton Orient verða þakkarkveðjur til framlínufólks í breska heilbrigðiskerfinu.
Á varabúningunum mun Kane, sem leikur fyrir Tottenham, svo auglýsa góðgerðarsamtök.
„Ég er fæddur og uppalinn rétt hjá leikvangnum og er gríðarlega ánægður með að félagið gaf mér fyrsta tækifærið fyrir aðalliðsfótbolta. Þetta gefur mér líka vettvang til að þakka hetjunum sem hafa verið í framlínunni á þessum erfiðu tímum," segir Kane.

BREAKING: We’re delighted to say that former loanee @HKane has taken the club’s shirt sponsorship for the 2020/21 season.
— Leyton Orient (@leytonorientfc) May 14, 2020
The home kit will be a thank you to the nation’s frontline heroes, whilst @HavenHouseCH and @MindCharity feature proudly on the away and third.
Read more 👇
Athugasemdir