Alfreð endursemur við Lyngby (Staðfest)

Alfreð Finnbogason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alfreð fagnar marki með Lyngby.

Mynd: Getty Images

Alfreð Finnbogason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Alfreð Finnbogason er búinn að framlengja samning sinn við danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby.
Nýr samningur hans gildir til sumarsins 2024.

Alfreð skrifaði undir eins árs samning við Lyngby síðasta sumar. Alfreð kom til Lyngby eftir sex ár hjá Augsburg í Þýskalandi. Hann er 34 ára framherji og byrjunarliðsmaður í íslenska landsliðinu.
Lyngby hélt sæti sínu í dönsku Superliga á dramatískan hátt og hefur mikið verið fjallað um það hér á Fótbolti.net. Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby, var til viðtals og var hann þar spurður út í Alfreð og framtíð hans.
„Ég veit ekki nákvæmlega stöðuna á samningaviðræðum en við munum allavega sjá hvað er rétt fyrir hann og hvort að þetta passi inn hjá okkur. Það vita það allir að ég vil hafa hann, engin spurning. Það er spurning hvort hann hafi áhuga á því og hvað klúbburinn segir í sambandi við samsetningu á leikmannahópnum," sagði Freysi en núna hefur Alfreð framlengt. Lyngby fagnar framlengingunni og Alfreð gerir það einnig sjálfur.
„Ég met umhverfið sem ég er í mjög mikils og andinn hjá Lyngby er mjög sérstakur... ég tel mig eiga óklárað verk hjá Lyngby og ég hlakka til að spila núna þegar ég er heill heilsu. Mér finnst ég vera á góðum stað og ég hlakka til að byrja að æfa aftur," segir Alfreð en hann glímdi svolítið við meiðsli á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu. Hann vonast til að vera heill heilsu á næstu leiktíð.
Lyngby er mikið Íslendingafélag en Kolbeinn Birgir Finnsson og Sævar Atli Magnússon eru einnig á mála hjá félaginu, ásamt því að áðurnefndur Freyr stýrir skútunni.
Sjá einnig:
Alfreð hafi verið tilbúinn að fórna ferlinum - „Mun aldrei gleyma því"
Alfreð og Sævar búnir að framlengja? - „Eiginlega fullkomið fyrir mig að vera áfram í Lyngby"

ALFRED FINNBOGASON??
— Lyngby Boldklub (@LyngbyBoldklub) June 14, 2023
Det er med stor glæde, at vi kan offentliggøre, at Alfred Finnbogason forlænger sin kongeblå aftale frem til sommeren 2024 ????
Læs mere her: https://t.co/GlKCQ622RI
Alfred Finnbogason præsenteres af Stålrør A/S! pic.twitter.com/j0p0NHkLjQ

Alfreð fagnar marki með Lyngby.

Mynd: Getty Images