Fotbolti.net
14.07.13 - 20:12
Magnús Már Einarsson

Hafþór Ægir og Thomas Sörensen til ÍA (Staðfest)

Hafþór Ægir Vilhjálmsson.

Hafþór Ægir Vilhjálmsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Botnlið ÍA hefur samið við tvo leikmenn sem munu leika með liðinu í Pepsi-deildinni út tímabilið.

Um er að ræða kantmanninn Hafþór Ægi Vilhjálmsson og danska varnarmanninn Thomas Sörensen.
Sörensen hefur aðallega leikið sem hafsent á ferli sínum en hann hefur einnig leikið í stöðu bakvarðar sem og djúpur á miðju.

Sörensen hefur undanfarin ár leikið með HB Køge í dönsku fyrstu deildinni en þar áður var hann á mála hjá Lyngby, Bronshøj, Ølstykke og Herfølge.

Hafþór Ægir losnaði undan samningi hjá Grindavík fyrir helgi en hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu þar í sumar.

Hafþór Ægir er uppalinn hjá ÍA en hann lék síðast með skagamönnum árið 2006. Síðan þá hefur hann leikið með Val, Þrótti og Grindavík.

ÍA mætir Fylki í miklum fallbaráttuslag í Pepsi-deildinni í Árbænum annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.