Fotbolti.net
14.07.13 - 12:15
Elvar Geir Magnússon

Jordan Branco fær leikheimild með Tindastóli (Staðfest)

Jordan Branco með Tindastólsbúninginn.

Jordan Branco með Tindastólsbúninginn.

Canon

Mynd: Twitter

Félagaskiptaglugginn opnar á morgun og nú þegar hefur verið staðfest á vef KSÍ að einhverjir leikmenn muni fá leikheimild frá og með morgundeginum.

Þar á meðal er framherjinn Jordan Branco sem hefur getið sér gott orð í bandaríska háskólaboltanum en hann gengur í raðir Tindastóls í 1. deildinni.
Hann kemur frá Southern New Hampshire líkt og þeir Christopher Tsonis og Ruben Resendes sem komu til Tindastóls fyrir tímabilið.

Branco náði samkomulagi við Tindastól í síðasta mánuði. Hann verður löglegur með Stólunum í leik gegn BÍ/Bolungarvík á þriðjudag.

Tindastóll er í níunda sæti 1. deildarinnar með 11 stig eftir tíu umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.