Fotbolti.net
14.07.13 - 17:58
Daníel Freyr Jónsson

Thiago til FC Bayern (Staðfest)

Thiago Alcantara.

Thiago Alcantara.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Spænski miðjumaðurinn Thiago Alcantara er genginn í raðir Evrópumeistara FC Bayern frá Barcelona.
Bayern greiðir Barcelona 25 milljónir evra fyrir þennann 22 ára gamla leikmann, en hann náði aldrei að festa sig í sessi sem byrjunarliðsmaður á Nou Camp.

Thiago hafði undanfarið verið sterklega orðaður við Manchester United. Enska félagið var til í að greiða honum hærri laun en Bayern. Sú staðreynd að Pep Guardiola stýrir Bayern er hinsvegar talin hafa skipt höfuðmáli í ákvörðun Thiago.

Thiago er þriðji leikmaðurinn sem Bayern fær í sumar. Áður hafði félagið greitt metfé fyrir ungstirnið Mario Götze frá Borussia Dortmund, auk þess sem varnarmaðurinn Jan Kirchoff var fenginn frá Mainz.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.