14.07.13 - 22:41
Hafliði Breiðfjörð
Þórður Birgisson í KF frá ÍA (Staðfest)

Þórður fagnar í fyrra eftir að KF tryggði sér sæti í 1. deild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður fagnar í fyrra eftir að KF tryggði sér sæti í 1. deild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn stóri og stæðilegi Þórður Birgisson er kominn aftur til KF en þetta var staðfest á vef félagsins rétt í þessu.
Þórður sem er þrítugur gekk til liðs við ÍA frá KF í vetur. Hann var mikið á varamannabekknum hjá Skagamönnum en spilaði í heildina níu leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark.
Hann var allt í öllu hjá KF á síðasta ári þegar liðið tryggði sér sæti í 1. deild karla og skoraði þá 18 mörk í 20 deildarleikjum.
Hann fær leikheimild strax hjá KF og verður með liðinu í leiknum gegn Selfossi í 1. deildinni á þriðjudagskvöldið.

Heimild: Vefir KF