Juventus hefur hækkað boð sitt í Mouro Icardi í 40 milljónir evra.
Corriere dello sport greinir frá því að Juventus sé búið að segja Inter að þeir muni ekki hækka tilboð sitt frekar.
Juventus telur sig vera í kjörstöðu og eru ekki að flýta sér að ganga frá kaupunum þar sem Inter þarf að selja leikmanninn til að ná í leikmann í stað Icardi.
Icardi ferðaðist ekki með Inter í æfingarferð og því nokkuð ljóst að það er aðeins tímaspursmál þangað til að Icardi fer frá Inter.
Athugasemdir