Stoke City er búið að staðfesta komu Steven Fletcher til félagsins á frjálsri sölu.
Fletcher er 33 ára gamall sóknarmaður sem hefur skorað 53 mörk fyrir Burnley, Wolves og Sunderland í ensku úrvalsdeildinni.
Hann rann út af samningi hjá Sheffield Wednesday þar sem hann gerði góða hluti í Championship deildinni og skoraði 13 mörk í 27 deildarleikjum á nýliðinni leiktíð.
Fletcher er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Stoke á frjálsri sölu í sumar en liðið endaði í neðri hluta Championship deildarinnar með 56 stig úr 46 leikjum.
Stoke er einnig búið að krækja í Morgan Fox frá Sheffield og James Chester frá Aston Villa.
Athugasemdir