Sarina Wiegman hefur verið ráðin þjálfari enska kvennalandsliðsins en þetta var staðfest í dag.
Wiegman skrifaði undir fjögurra ára samning en hún mun taka við af Phil Neville þegar hann hættir á næsta ári.
Wiegman er núverandi landsliðsþjálfari Hollands. Hún gerði liðið að Evrópumeisturum 2017 og kom því svo í úrslitaleik HM 2019.
Hún lék 104 landsleiki fyrir Holland á leikmannaferli sínum, en hún lék sem miðjumaður.

„Ég er hæstánægð og það er heiður að taka við enska kvennalandsliðinu á næsta ári," sagði Wiegman.
Athugasemdir