Marko Arnautovic, leikmaður Bologna á Ítalíu, var orðaður við Manchester United á dögunum en félagið hafði þá áhuga á að fá sóknarmanninn til liðsins og bauð í hann.
Það rann út í sandinn en Arnautovic er sagður hafa viljað fara til Manchester borgar. Leikmaðurinn var spurður út í þetta á blaðamannafundi í gær en Bologna heimsækir Lazio í dag í Serie A deildinni á Ítalíu.
„Markaðurinn er bara eins og hann er. Ég hef verið í þessu lengi og ég veit að stundum eru félög sem sýna áhuga á manni," sagði Arnautovic.
„Í dag einbeiti ég mér einungis að Bologna."
Framherjinn gerði 14 mörk í ítölsku deildinni með Bologna á síðustu leiktíð en United bauð 7,6 milljónir punda í hann.
Athugasemdir