Manchester United er að undirbúa tilboð í Sergio Reguilón en er þó ekki tilbúið að borga þær 30 milljónir punda sem verðmiði Real Madrid hljóðar uppá.
United hefur verið að fylgjast með stöðu mála hjá þessum 23 ára vinstri bakverði í nokkurn tíma.
Reguilón á þrjú ár eftir af samningi sínum við Real Madrid en er ekki í áætlunum Zinedine Zidane fyrir nýtt tímabil. Hann var á láni hjá Sevilla á síðasta tímabili.

Samkvæmt heimildum Guardian vill leikmaðurinn fara á Old Trafford þar sem hann myndi veita Luke Shaw samkeppni.
Athugasemdir