Þrír leikmenn úr varaliðum Real Madrid hafa verið handteknir fyrir að deila myndbandi af einum leikmanni liðsins í kynlífsathöfnum með stelpu undir lögaldri.
Real Madrid vildi ekki tjá sig um atvikið í fyrstu en hefur nú gefið út yfirlýsingu vegna málsins.
„Real Madrid hefur komist að því að leikmaður í varaliðinu og þrír leikmenn í C liðinu hafa gefið skýrslu til yfirvalda í tengslum við kvörtun vegna meintrar dreyfingar einkamyndbands á WhatsApp. Þegar félagið hefur frekari upplýsingar vegna málsins mun það gera viðeigandi ráðstafanir," segir í yfirlýsingunni.
Enginn úr aðalliði félagsins er tengdur málinu.
Athugasemdir