Jökull framlengir við Stjörnuna (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til ársins 2027.
Hann gekk til liðs við Stjörnuna árið 2021 og var aðstoðarþjálfari liðsins en tók við sem aðalþjálfari af Ágústi Gylfasyni sem var látinn taka pokann sinn í maí.
Eftir erfiða byrjun hjá Stjörnunni í sumar náði Jökull frábærum árangri, endaði liðið í 3. sæti deildarinnar, tryggði sér þar með þátttöku í Evrópukeppni á næstu leiktíð og var það lið sem fékk á sig fæst mörk í sumar.
„Ég er þakklátur og spenntur að skrifa undir nýjan samning við Stjörnuna! Við erum að koma úr flottu tímabili en nú þurfum við að gera betur og gera meira og ég hlakka mikið til að byrja undirbúningstímabil þar sem við munum leggja enn meira á okkur en við höfum áður gert” sagði Jökull við undirskriftina.




