Fotbolti.net
14.10.23 - 18:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Viktor Unnar ráðinn til Vals

Viktor Unnar ráðinn til Vals
Canon

Mynd: Ólafur Long

Fyrrum atvinnumaðurinn Viktor Unnar Illugason hefur verið ráðinn til starfa hjá Val.

Þar mun hann starfa sem þjálfari 2. flokks og 4. flokks.

Meðfram því mun hann starfa í teymi meistaraflokks karla sem transition coach sem felst í því að hjálpa ungum leikmönnum að taka skrefið upp í meistaraflokk.
Viktor hefur starfað sem yngri flokka þjálfari hjá Breiðabliki undanfarin ár.

Hann er 33 ára og lék sem sóknarmaður á sínum ferli. Hann er uppalinn í Breiðabliki og var fenginn til Reading á Englandi á sautjánda aldursári eftir eitt tímabil í meistaraflokki.

Hann sneri aftur til Íslands árið 2009 og lék með Val, Selfossi, Njarðvík, Þrótti, Haukum og HK áður en hann hélt í neðri deildirnar árið 2016.

Síðustu skráðu leikir eru með Álafossi tímabilið 2021. Á sínum tíma lék Viktor 26 leiki fyrir yngri landsliðin.
Viktor Unnar ráðinn til Vals
Canon

Mynd: Ólafur Long

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.