Þorsteinn Aron til Vals frá Fulham (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Valur tilkynnti í dag um komu Þorsteins Arons Antonssonar sem gengur í raðir félagsins eftir að hafa spilað með Selfossi í Lengjudeildinni í sumar. Hann kemur til Vals frá Fulham en hann var á láni á Selfossi frá enska félaginu.
Þorsteinn Aron er unglingalandsliðmaður, miðvörður sem var árið 2020 valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar og var hann keyptur til Fulham þá um haustið.
Þorsteinn Aron er unglingalandsliðmaður, miðvörður sem var árið 2020 valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar og var hann keyptur til Fulham þá um haustið.

TENGT EFNI
Þorsteinn Aron búinn að semja við Val - Klárar tímabilið á Selfossi
Fyrri hluta tímabilsins 2022 var hann á láni hjá Stjörnunni en spilaði þó ekkert. Hann lék seinni hluta þess tímabils með Selfossi og svo allt síðasta tímabil.
Hann var undir smásjá erlendra félaga í sumar en varð fyrir því óláni að meiðast í fyrsta leik með U19 landsliðinu á lokamóti EM. Í aðdraganda tímabilsins í ár fór hann á reynslu hjá Öster.
Þorsteinn, sem er nítján ára gamall, skrifar undir samning út sumarið 2026.
Komnir
Bjarni Guðjón Brynjólfsson frá Þór
Gísli Laxdal Unnarsson frá ÍA
Þorsteinn Aron Antonsson frá Selfossi
Arnór Ingi Kristinsson frá Leikni (var á láni)
Ólafur Flóki Stephensen frá Grindavík (var á láni)
Farnir
Andri Rúnar Bjarnason í Vestra
Guy Smit (var á láni hjá ÍBV)
Samningslausir
Sveinn Sigurður Jóhannesson (1995) - 16.10
Birkir Már Sævarsson (1984) - 16.1