Chelsea verðmetur Jackson á 100 milljónir punda - Rashford efstur á óskalista Barcelona - Sancho til Juventus?
   fim 14. nóvember 2024 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tveir nýir leikmenn nú þegar í planinu fyrir næsta tímabil
Evrópumeistarar Real Madrid eru að horfa í framtíðina. Samkvæmt Relevo er félagið að undirbúa næsta tímabil með tvo nýja leikmenn í liðinu.

Það er í fyrsta lagi Trent Alexander-Arnold. Samningur hans hjá Liverpool og það er í forgangi hjá Real Madrid að fá hann á frjálsri sölu næsta sumar.

Real Madrid sér ekki fyrir að fá hann í janúar, það sé nánast ómögulegt.

Madrídingar eru einnig byrjaðir að plana fyrir næsta tímabil með það í huga að Alphonso Davies verði í vinstri bakverðinum. Samningur hans við Bayern München er að renna út.

Real Madrid er því að plana fyrir janúargluggann með það í huga að tveir leikmenn komi til félagsins næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner