Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 14. desember 2019 14:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Markið sem var tekið af Liverpool - „Þetta er ekki fótbolti"
Mynd: Getty Images
Það var mark tekið af Liverpool í 2-0 sigrinum á Watford í dag.

Sadio Mane virtist vera að koma Liverpool í 2-0 snemma í seinni hálfleiknum, en markið var dæmt af vegna rangstöðu - eftir að það var skoðað í VAR.

Þetta er gríðarlega tæpt eins og sjá má á myndinni hér að neðan. „Þetta er ekki fótbolti," skrifar fjölmiðlamaðurinn Rob Harris við myndina.

VAR kom inn í enska boltann fyrir tímabilið og hefur ekki verið að vekja rosalega mikla lukku.

Mohamed Salah skoraði bæði mörk Liverpool sem hefur unnið alla leiki nema einn í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Eini leikurinn sem Liverpool bar ekki sigur úr býtum í, var gegn Manchester United þar sem leikar enduðu 1-1.

Athugasemdir
banner
banner