Kjartan Henry verður aðstoðarmaður Heimis

Kjartan Henry Finnbogason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Henry Finnbogason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry Finnbogason verður aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá FH samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
FH hafnaði í fimmta sæti Bestu deildarinnar í sumar en hefur verið í leit að aðstoðarþjálfara síðan Sigurvin Ólafsson lét af störfum til að taka við sem aðalþjálfari Þróttar í Lengjudeildinni.
FH hafnaði í fimmta sæti Bestu deildarinnar í sumar en hefur verið í leit að aðstoðarþjálfara síðan Sigurvin Ólafsson lét af störfum til að taka við sem aðalþjálfari Þróttar í Lengjudeildinni.

TENGT EFNI
Kjartan Henry opnar sig um viðskilnaðinn við KR - „Einhvern veginn verið að gera lítið úr manni“
Kjartan, sem er 37 ára, yfirgaf uppeldisfélag sitt KR fyrir síðasta tímabil og gekk í raðir FH þar sem hann skoraði ellefu mörk í 24 leikjum í Bestu deildinni.
Líklegt verður að teljast að skórnir fari upp í hillu hjá Kjartani fyrst hann er að taka að sér aðstoðarþjálfarahlutverkið í Hafnarfirði.
Líklegt verður að teljast að skórnir fari upp í hillu hjá Kjartani fyrst hann er að taka að sér aðstoðarþjálfarahlutverkið í Hafnarfirði.



