Kjartan Henry opnar sig um viðskilnaðinn við KR - „Einhvern veginn verið að gera lítið úr manni“

Kjartan Henry Finnbogason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Rúnar og BJarni Guðjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan var laser-fókuseraður með FH í sumar og hafði engan áhuga á að vera hluti af einhverri athöfn á KR-vellinum

Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Henry Finnbogason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í byrjun tímabils var hann fastamaður en þegar leið á tímabilið mátti hann þola mikla bekkjarsetu og var í raun hættur að spila þegar leið enn lengra inn í tímabilið.
Hvað gerðist þar?
„Ég eiginlega veit það ekki. Þetta var mjög skrítið en ég kem heim 2021 og eitthvað búið af tímabilinu. Koma inn af krafti en svo einhvern vegin æxluðust hlutirnir. Ég get alveg sagt það að fyrir tímabilið í fyrra eða hitt í fyrra þá gagnrýndi ég ákveðna hluti. Sigurvin Ólafsson sem var þá aðstoðarþjálfari var látinn fara og kallaður ráðgjafi og mér fannst þetta mjög lélegt og svo voru fleiri hlutir. Við fórum í æfingaferðir og einn mjög góður sjálfboðaliði í KR sem allir þekkja og vita hverjir er, að honum hafi ekki verið boðið í það. Mér fannst að það ætti að vera betur að þessu staðið því íþróttafélögin eru ekkert án sjálfboðaliða. Það er fullt af fólki sem er að gefa sína vinnu og jafnvel sína fjármuni og eiga kannski ekki mikið af þeim en elska félagið. Ekkert fótboltafélag á Íslandi getur unnið án sjálfboðaliða. Maður var kannski með einhverjar pillur og gagnrýna einhverja hluti,“ sagði Kjartan Henry í þættinum.
Að vera aðstoðarþjálfari og framkvæmdastjóri á ekki saman
Vakti hann þar athygli á því að Sigurvini Ólafsson var sagt upp störfum sem aðstoðarþjálfara og gerður að sérstökum ráðgjafa þjálfarateymisins. Bjarni Guðjónsson kom inn í teymið, en hann var og er framkvæmdastjóri félagsins.
Kjartani finnst það tvennt ekki eiga saman.
„Ég var kannski að senda framkvæmdastjóranum sms og eitthvað svona og svo var hann einmitt aðstoðarþjálfari líka. Náði að ýta ráðgjafanum til hliðar en þetta var mjög skrítið og ég er þannig gerður og oft komið mér um koll að ég segi það sem mér finnst. Það stuðaði kannski einhvern en þetta var ótrúlega skrítið. Hægt og rólega fór þetta í að byrja alla leiki og held ég hafi verið búinn að skora einhver fjögur mörk og settur á bekkinn og koma inn á í eina mínútu. Það var einhvern veginn verið að gera lítið úr manni og svo hægt og rólega ekki að koma neitt inn á og svo ekki í hóp. Það var ekki eins og við værum að vinna alla leiki. Þetta var rosalega furðulegt.“
„Ég get sagt það að það er rosalega skrítið þegar framkvæmdastjóri fótboltaliðs ýtir harðduglegum aðstoðarþjálfara til hliðar, hvort sem það sé hann eða einhver annar, er að borga launin og safna peningum fyrir laununum og menn eru kannski ekki að fá borgað á réttum tíma og eru með mishá laun og hann er að velja liðið með þjálfaranum. Það á ekki saman. Það eiga allir sinn þátt í þessu öllu saman en ég held að þetta tvennt að vera reka íþróttafélag og skipta þér að liðsvali og hvaða leið á að fara þá geta svona árekstrar átt sér stað og mér fannst leiðinlegt að vera þar á milli, en þegar einar dyr lokast þá opnar aðrar og mér var tekið frábærlega í Hafnarfirðinum.“
Mál sem aldrei var tæklað
Kjartan var með klásúlu í samningnum sem gaf KR rétt til að rifta ef hann spilaði minna en 50 prósent allra leikja og var hann kominn nálægt þeirri prósentu áður en spiltími hans minnkaði.
„Það var meira að segja klásúla í samningnum þar sem maður þurfti að spila 50 prósent og það var eiginlega alveg komið að því. Maður fór að spyrja sig ef þetta snýst um það af hverju ekki að setjast niður og ræða málin: „Heyrðu Kjartan við ætlum að leyfa yngri leikmönnum að spila. Viltu hjálpa okkur í því? Bara ekkert mál“. Allt fyrir KR og nú er ég búinn að fara yfir eitthvað af þessum mistökum sem ég hef gert á mínum ferli og maður hjálpar að sættast við það með að hjálpa einhverjum öðrum. Ég er þar núna, var það í fyrra og hitt í fyrra líka. Ég vil hjálpa ungum og efnilegum leikmönnum að komast sem lengst og hvað þá í mínu félagi, en þetta var bara mjög furðulegt og aldrei tæklað. Ég mætti á allar æfingar og allir liðsfélagar geta kvittað fyrir það. Æfði eins og skepna og lét finna fyrir mér.“

Klásúlan sem varð til þess að KR setti Kjartan út í kuldann
„Kristján Flóki var búinn að vera meiddur og fótbrotnaði og var flýtt allt of snemma að mér fannst og bara allt reynt til ég þyrfti ekki að spila. Ég hætti bara á miðju tímabili og held að ég og Sigurður Bjartur Hallsson hafi verið markahæstir með fjögur mörk í lok tímabils. Þetta var mjög sérstakt og leiðinlegt allt saman.“ sagði hann ennfremur.
Þykir vænt um Rúnar sem var ólíkur sjálfum sér
Kjartan fannst þá Rúnar Kristinsson, sem var þjálfarinn á þessum tíma, ólíkur sjálfum sér þetta árið. Hvernig voru samskiptin?
„Það var bara ekki neitt. Hann var bara þjálfari manns og tók í hendina á honum fyrir æfingar. Mér þykir rosalega vænt um Rúnar, frábær náungi og þjálfari, en ég veit ekkert hvað gerðist og hef ekkert tekið það samtal við hann. Ég var í algeru mode-i í sumar og laser-fókuseraður að láta til mín taka, eins mikið og ég gat, en mér þykir vænt um Rúnar og fannst hann vera svolítið ólíkur sjálfum sér hvað þetta varðar því það hefur alltaf verið hans styrkleiki að vera með menn í sínu liði og þessi mannlegi þáttur bara, en ég veit ekkert hvað olli því.“

Rúnar Kristins ósáttur með hegðun Kjartans Henry: Enginn stærri en KR
Var aldrei að fara samþykkja skjöld eða vönd fyrir leik
Viðskilnaður endaði að lokum á lögfræðilegan hátt og kann hann eiginkonu sinni miklar þakkir fyrir ráðgjöfina sem hann fékk í þessu ferli.
„Ég var alveg trylltur í sumar. Samningnum mínum var sagt upp, en vitlausum samning og svo mætti Rúnar í viðtöl og sagði að ég væri víst á samning en ég var ekki á samning og hann vissi það ekki. Þetta var ógeðslega leiðinlegt og sem KR-ingur vildi ég ekki að KR yrði sett í eitthvað skítaljós, léleg vinnubrögð eða skítafýla þar, en það var allt tæklað á lögfræðilegan hátt. Ég bý svo vel að konan mín er lögfræðingur og fékk góða ráðgjöf.“

Kjartan Henry: Ef þeir vilja gefa mér skjöld geta þeir sent mér hann
Kjartan samdi við FH eftir að hafa rift við KR og þegar hann snéri aftur á sinn gamla heimavöll í sumar fékk hann að vita það rétt fyrir leik að það átti að vera sérstök athöfn honum til heiðurs, en hann tók það ekki í mál.
„Þeir hnoðuðu í einhverja afsökunarbeiðni og svo í sumar mættu þeir með skjöld eða vönd eða eitthvað. Ef ég að ég hefði verið spurður daginn áður eða einum og hálfum tíma áður þá hefði ég örugglega líka sagt nei. Þá hefði verið hægt að koma í veg fyrir þessa atburðarás inn í fjölmiðlabúri þar sem einhverjir menn voru að twitta. Þetta var aldrei í boði en ég hitti mína félaga Gumma Stóra, Láka, Jóa Hák, Palla, Sigga Helga og knúsaði þessa gaura og þurfti síðan að fara í útiklefann, sem var mjög skrítið því ég hef aldrei komið þangað inn, en svo þegar ég er að hlaupa inn, búinn að hita upp og er í þvílíku zone-i þá er hnippt í mig og sagt: „Við þurfum að koma fyrr út því þú ert að fá viðurkenningu. Það eru KR-rúmföt eða eitthvað. Ég veit það ekki“ og ég sagði bara að ég vil það ekki og ég var ekki að reyna vera eitthvað fífl og þetta hefði ekki þurft að vera svona. Ef það hefði verið sagt við mig daginn áður hefði ég bara sagt: „Mér þykir vænt um ykkur en við skulum sleppa þessu“. Ég sagði í einhverju PR að taka í hendina á mönnum og hlæja, en ég var ekki þar,“ sagði hann í lokin um þetta mál.

KR harmar vinnubrögðin í tengslum við Kjartan Henry


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Rúnar og BJarni Guðjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan var laser-fókuseraður með FH í sumar og hafði engan áhuga á að vera hluti af einhverri athöfn á KR-vellinum

Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



