Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 15. janúar 2021 21:42
Victor Pálsson
Ítalía: Lazio með sýningu í grannaslagnum
Alberto og Immobile gátu fagnað í kvöld.
Alberto og Immobile gátu fagnað í kvöld.
Mynd: Getty Images
Lazio 3 - 0 Roma
1-0 Ciro Immobile('14)
2-0 Luis Alberto('23)
3-0 Luis Alberto('67)

Lazio vann grannaslaginn í Róm í kvöld ansi sannfærandi er liðið mætti Roma á Stadio Olimpico í 18. leik beggja liða í Serie A á tímabilinu.

Það er yfirleitt mikið fjör í boði þegar þessir nágrannar mætast en þeir bláklæddu reyndust of sterkir fyrir Roma í leik kvöldsins.

Ciro Immobile elskar fátt meira en að skora mörk og gerði sitt 12. mark á tímabilinu er hann kom Lazio yfir í kvöld. Aðeins Cristiano Ronaldoe r með fleiri mörk en Immobile á tímabilinu eða 15 talsins.

Miðjumaðurinn Luis Alberto bætti við öðru marki Lazio ekki löngu seinna og staðan 2-0 í leikhléi.

Alberto gerði svo sjálfur út um leikinn á 67. mínútu er hann skoraði sitt annað og þriðja mark Lazio sem vann örugglega, 3-0.

Lazio lyfti sér upp í sjöunda sætið með sigrinum og er nú þremur stigum frá Roma sem er í þriðja sætinu.
Athugasemdir
banner
banner