Keflavík 1 - 1 Haukar
0-1 Berglind Þrastardóttir ('3)
1-1 Anita Lind Daníelsdóttir ('8)
0-1 Berglind Þrastardóttir ('3)
1-1 Anita Lind Daníelsdóttir ('8)
Keflavík og Haukar skildu jöfn þegar liðin mættust í Faxaflóamóti kvenna í dag.
Allt fjörið var á fyrstu tíu mínútum leiksins; Haukar tóku forystuna á þriðju mínútu þegar Berglind Þrastardóttir skoraði og fimm mínútum síðar jafnaði Aníta Lind Daníelsdóttir fyrir Keflavík.
Ekki voru fleiri mörk skoruð í Nettóhöllinni í Reykjanesbæ og niðurstaðan því jafntefli.
Bæði lið eru með eitt stig eftir tvo leiki; Keflavík tapaði fyrir Stjörnunni í fyrsta leik og Hauka töpuðu sannfærandi gegn Aftureldingu.
Keflavík er í efstu deild og Haukar í næst efstu deild.
Athugasemdir