Fotbolti.net
15.01.23 - 14:20
Aksentije Milisic

Sverrir Páll til ÍBV (Staðfest)

Sverrir Páll til ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍBV

Sverrir Páll Hjaltested er genginn í raðir ÍBV í Bestu deildinni en þetta staðfesti félagið í dag.

Hann skrifar undir þriggja ára samning við ÍBV.

Sverrir er sóknarmaður sem kemur frá Val en hann var á láni hjá Kórdrengjum í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð.

Sverrir er fæddur árið 2000 en árið 2021 lék hann alls 17 leiki fyrir Val í Pepsi Max deild karla. Hann hefur þá einnig spilað með Völsungi og KH.

Í fyrra skoraði Sverrir sex mörk í fjórtán leikjum fyrir Kórdrengi. Kappinn á að baki 66 leiki í meistaraflokki og 18 mörk.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.