Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 15. febrúar 2021 22:18
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Dimarco frábær í sigri Verona á Parma
Federico Dimarco var öflugur með Verona í kvöld
Federico Dimarco var öflugur með Verona í kvöld
Mynd: Getty Images
Verona 2 - 1 Parma
0-1 Juraj Kucka ('8, víti )
1-1 Alberto Grassi ('13, sjálfsmark )
2-1 Antonin Barak ('61 )

Hellas Verona vann Parma 2-1 í Seríu A á Ítalíu í kvöld en þetta var níundi sigur liðsins á tímabilinu.

Juraj Kucka kom Parma yfir með marki úr vítaspyrnu á 8. mínútu leiksins. Verona hafði tapað síðustu tveimur deildarleikjum sínum og voru ekki alveg á því að tapa þriðja leiknum í röð.

Kevin Lasagna átti fyrirgjöf inn í teiginn á Federico Dimarco sem skaut boltanum í Alberto Grassi og í netið. Ítalska deildin skráði markið sem sjálfsmark á Grassi.

Dimarco lagði þá upp sigurmarkið en hann tók hornspyrnu sem fór beint á hausinn á Antonin Barak og í netið.

Lokatölur 2-1 fyrir Verona sem er í 9. sæti með 33 stig á meðan Parma er með 13 stig í 19. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner