CSKA Moskva hefur fengið framherjann Salomon Rondon á láni frá Dalian Pro í Kína.
Íslensku landsliðsmennirnir Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon spila með CSKA.
Hinn 31 árs gamli Rondon klárar tímabilið með CSKA en hann verður síðan samningslaus í sumar.
Íslensku landsliðsmennirnir Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon spila með CSKA.
Hinn 31 árs gamli Rondon klárar tímabilið með CSKA en hann verður síðan samningslaus í sumar.
Rondon er frá Venesúela en hann hefur meðal annars leikið með WBA og Newcastle á ferli sínum.
CSKA Moskva er í 2. sæti í rússnesku úrvalsdeildinni, fjórum stigum á eftir Zenit St. Pétursborg. Boltinn byrjar aftur að rúlla í Rússlandi eftir vetrarfrí um þarnæstu helgi.
Athugasemdir