Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 15. mars 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Henrik Máni framlengir við Stjörnuna
Mynd: Stjarnan
Henrik Máni Hilmarsson hefur framlengt samningi sínum við Stjörnuna til loka árs 2025.

Henrik, sem er fæddur árið 2003, kom við sögu í fimm leikjum með Stjörnunni á síðasta tímabili en auk þess var hann á láni hjá KFG þar sem hann spilaði 10 leiki og gerði 2 mörk í 3. deildinni.

Hann skrifaði í dag undir nýjan samning við Stjörnuna en sá samningur gildir út 2025.

Þá skrifaði Dagur Orri Garðarsson undir sinn fyrsta samning við félagið en hann gildir einnig til 2025.

Dagur Orri er fæddur árið 2005 og hefur komið við sögu í einum leik með liðinu í Lengjubikarnum á undirbúningstímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner