Fotbolti.net
15.04.16 - 21:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Skrifar frá: Egilshöll

Þorvaldur Örlygs: Ég horfi bara á mitt lið og við vorum ekki góðir

Auglýsing
Þorvaldur Örlygsson

Þorvaldur Örlygsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Ég horfi bara á mitt lið og við vorum ekki góðir í dag, áttum ekki góðan dag,\" sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Keflavíkur eftir 4-0 tap gegn KR í undanúrslitum Lengjubikarsins.
Morten Beck Andersen skoraði tvö mörk í lok fyrri hálfleiks tryggði KR-ingum 2-0 forystu sem Keflvíkingar ógnuðu aldrei. Hólbert Aron og Indriði Sigurðsson gulltryggðu síðan öruggan sigur í seinni hálfleik.

„Við náðum ekki að halda boltanum nógu vel og ekki nýta uppspilið okkar.\"

Eins og áður sagði skoraði Morten Beck tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks og var Þorvaldur ósáttur við þau mörk.

„Við vorum komnir inn í leikinn en svo fáum við á okkur tvö ódýr mörk.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.