Watkins orðaður við United - Bayern sýnir Díaz áhuga - Arsenal hefur rætt við Eze
   fim 15. apríl 2021 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Evrópudeildin í dag - Fara Man Utd og Arsenal áfram?
Villarreal, Manchester United og Roma eru með forystu fyrir seinni leikina í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Villlarreal vann fyrri leikinn gegn Dinamo Zagreb 1-0 í Króatíu. Man Utd vann 0-2 útisigur gegn Granada og Roma vann 1-2 útisigur gegn Ajax í Amterdam.

Í fjórða einvíginu gerðu Arsenal og Slavia 1-1 jafntefli á Emirates leikvanginum og mikil spennna í því einvígi.

Sigurvegar úr einvígi Dinamo Zagreb og Villarreal mætir sigurvegaranum úr einvígi Arsenal og Slavia Prag.

Manchester United er í kjörstöðu gegn Granada og mætir annað hvort Roma eða Ajax ef liðið tapar ekki tveggja marka mun í kvöld.

EUROPA LEAGUE: Quarterfinal
19:00 Man Utd - Granada CF
19:00 Slavia Prag - Arsenal
19:00 Roma - Ajax
19:00 Villarreal - Dinamo Zagreb
Athugasemdir
banner