Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 15. maí 2021 19:13
Victor Pálsson
Tielemans eftir leik: Takk VAR!
Mynd: Getty Images
Youri Tielemans, hetja Leicester í kvöld, þakkaði VAR fyrir eftir úrslitaleik enska bikarsins gegn Chelsea.

Tielemans skoraði eina mark leiksins með þrumufleyg fyrir utan teig og tryggði Leicester sinn fyrsta bikarmeistaratitil.

Chelsea jafnaði metin á 89. mínútu en markið var dæmt af með VAR þar sem Ben Chilwell var rangstæður.

„Takk VAR! Þvílíkt dæmi sem það er!" sagði Tielemans í samtali við BT Sport eftir leikinn.

„Þetta var erfið ákvörðun en þegar þú þarft að taka hana þá þarftu að gera það. Kannski var þetta tæp rangstaða en þetta var rangstaða."

„Tilfinningin er góð, hún er frábær. Ég er hæstánægður með að hafa skorað markið sem hjálpaði liðinu að vinna."
Athugasemdir
banner
banner