Fotbolti.net
15.05.26 - 18:23
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Mourinho bað um frest til að svara tilboði Benfica

Mourinho bað um frest til að svara tilboði Benfica
Canon

Mynd: EPA

José Mourinho hefur staðið sig feykilega vel við stjórnvölinn hjá Benfica í Portúgal og er sterklega orðaður við endurkomu til Real Madrid sem er búið að fara í gegnum tvö vonbrigðatímabil í röð.
Florentino Pérez forseti Real Madrid er talinn vera mjög spenntur fyrir Mourinho en líklegt er að opinberar viðræður geti ekki hafist fyrr en eftir nýboðaðar forsetakosningar félagsins.

Benfica er í þriðja sæti portúgölsku deildarinnar fyrir lokaumferð tímabilsins, tveimur stigum á eftir Sporting CP sem er jafnframt í síðasta meistaradeildarsætinu. Benfica er sem stendur á leið í Evrópudeildina í haust þrátt fyrir að vera enn ósigrað á deildartímabilinu.

Mourinho er með eitt ár eftir af samningi sínum við Benfica og fékk nýtt samningstilboð á dögunum en vill ekki gefa svar strax.

„Benfica sendi mér nýtt samningstilboð á miðvikudaginn en ég get ekki svarað því strax. Við sjáum til eftir síðasta leik tímabilsins á sunnudaginn. Næsta vika er mikilvæg fyrir mína framtíð," sagði Mourinho.

„Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af minni persónulegu stöðu. Enginn ætti að hafa áhyggjur af því hvort einhver verði áfram eða fari í burtu útaf því að Benfica er miklu stærra heldur en einhver einn einstaklingur."

Miðað við þessi ummæli telja stuðningsmenn Benfica miklar líkur á því að Mourinho yfirgefi Portúgal ef honum berst tilboð frá stærra félagi.

Mourinho að taka við Real Madrid - Viðræður á lokastigi
TENGT EFNI

Mourinho að taka við Real Madrid - Viðræður á lokastigi

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.