Hrannar Björn Steingrímsson, leikmaður KA, skoraði frábært mark þegar að hans menn unnu 2-1 sigur gegn Grindavík.
„Við ætluðum okkur að sækja þessi þrjú stig með vinnusemi, sem að við gerðum og það er það sem að skilaði þessu hér í dag." sagði Hrannar eftir leik.
„Við ætluðum okkur að sækja þessi þrjú stig með vinnusemi, sem að við gerðum og það er það sem að skilaði þessu hér í dag." sagði Hrannar eftir leik.
Lestu um leikinn: KA 2 - 1 Grindavík
Eins og fyrr segir skoraði Hrannar glæsilegt mark rétt undir lok fyrri hálfleiks með skoti af 25 metrunum. Hrannar segist hafa verið staðráðin í að skora í dag.
„Fyrsta sem að kom upp í hugann á mér þegar að ég sá hann inni var sjálfsmarkið á móti KR í síðustu umferð. Ég sagði við svona 30-40 KA menn fyrir leik að ég myndi skora og ég stóð við það." hafði Hrannar um markið að segja.
KA menn lyfta sér upp í 5.sæti með sigrinum og eru komnir með 12 stig, en það er jafn mikið og FH, Stjarnan og Fylkir.
„Byrjunin hjá okkur hefur ekki verið neinn heimsendir þó að umræðan hafi verið þannig. Við höfum verið að skila frammistöðum og á meðan við gerum það skilum við inn stigum" sagði Hrannar að lokum.
Nánar er rætt við Hrannar í spilaranum að ofan. Ritari biðst afsökunar á hljóðgæðum.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir