Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 15. júní 2021 21:08
Victor Pálsson
Myndband: Ótrúlegur hraði Kylian Mbappe
Mynd: EPA
Kylian Mbappe er ekkert lítið hraður leikmaður en hann er landsliðsmaður Frakklands á EM 2020.

Mbappe var flottur fyrir lið Frakklands í kvöld er liðið vann Þýskaland með einu marki gegn engu.

Framherjinn var nálægt því að bæta við öðru marki Frakka í seinni hálfleik en hann var hársbreidd frá því að sleppa einn í gegn.

Mbappe fór í kapphlaup við Mats Hummels, varnarmann Þýskalands, og er óhætt að segja að sá síðarnefndi hafi ekki átt mikla möguleika.

Mbappe náði til boltanns að lokum en Hummels gerði vel með tæklingu sem gæti hafa bjargað marki.

Rosalegan hraða Mbappe má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner