Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. júní 2021 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nær Under að sannfæra Mourinho eða fer hann til Flórens?
Under og Vardy
Under og Vardy
Mynd: Getty Images
Framtíð Cengiz Under hjá Roma er í talsverðri óvissu. Under lék með Leicester á láni á liðinni leiktíð en náði ekki að heilla nægilega marga á Englandi til að eiga framtíð þar. Allavega ekki ef mark á að taka á fréttaflutningi ítalskra miðla.

Fiorentina er sagt hafa áhuga á að fá Tyrkjann frá Roma.

Sky á Ítalíu segir frá því að Under vilji reyna sannfæra Jose Mourinho, nýjan stjóra Roma, að hann eigi heima í leikmannahópi Roma.

Fiorentina er sagt hafa áhuga á Under en ef það klikkar þá verður horft til Nico Gonzalez hjá Stuttgart eða Goncalo Guedes hjá Valencia.

Under kom einungis við sögu í níu deildarleikjum með Leicester á liðinni leiktíð. Hann lagði upp sigurmark Jamie Vardy gegn Arsenal en gerði lítið annað. Hann skoraði svo eitt mark í bikarnum og eitt mark í Evrópudeildinni.

Under verður 24 ára í júlí. Hann gekk í raðir Roma frá Istanbul Basaksehir sumarið 2017.
Athugasemdir
banner
banner
banner