Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 15. júní 2021 21:20
Victor Pálsson
Ronaldo orðinn markahæstur í sögu EM
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo er orðinn markahæsti leikmaður í sögu Evrópumeistaramótsins.

Þetta varð staðfest í kvöld eftir að Portúgal vann lið Ungverjalands með þremur mörkum gegn engu.

Fyrir þetta mót var Ronaldo markahæstur í sögunni ásamt Michel Platini með níu mörk.

Ronaldo skoraði svo tvennu fyrir Portúgal í leik kvöldsins en hann gerði það fyrra úr vítaspyrnu.

Hann er því orðinn markahæsti leikmaðurinn í sögu keppninnar með 11 mörk.

Ronaldo hefur spilað á fimm Evrópumeistaramótum sem er einnig met.
Athugasemdir
banner
banner