Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 15. júní 2021 09:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu mörk KR í gær: Kjartan Henry stal marki af Flóka
Flóki fagnaði markinu með Ægi Jarli.
Flóki fagnaði markinu með Ægi Jarli.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
KR vann í gær 0-2 sigur í Breiðholti gegn Leiknismönnum í Pepsi Max-deildinni. Það voru þeir Pálmi Rafn Pálmason og Kjartan Henry Finnbogason sem skoruðu mörkin, á fimmtu mínútu hvors hálfleiks.

Pálmi skoraði eftir hornspyrnu í fyrri hálfleik en mark Kjartans kom eftir flott spil. Svona var markinu lýst í textalýsingu í gær:

„Hahaha sjá Kjartan þarna! Stelur markinu af (Kristjáni) Flóka (Finnbogasyni). Þetta er markagræðgi! Ægir með frábæra sendingu inn á Flóka sem klárar listilega með vippu en Kjartan gráðugur á línunni og á síðustu snertingu!! Spurning með rangstöðu samt á Kjartan??" skrifaði undirritaður í textalýsingu frá leiknum í gær.

Mörkin má sjá hér að neðan sem og viðtal við Kristán Flóka.

Leiknir R. 0 - 2 KR
0-1 Pálmi Rafn Pálmason ('5 )
0-2 Kjartan Henry Finnbogason ('50 )
Lestu um leikinn


Kristján Flóki um markið: Hefði verið brjálaður
Athugasemdir
banner
banner
banner