Fotbolti.net
15.06.22 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

ESPN: Pochettino rekinn frá PSG

ESPN: Pochettino rekinn frá PSG
Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino hefur verið rekinn sem stjóri PSG. Frá þessu segja heimildarmenn ESPN. PSG varð franskur meistari í vor en það var ekki nóg fyrir ráðamenn hjá PSG svo Pochettino héldi starfinu.

Argentínumaðurinn var ráðinn stjóri liðsins fyrir einu og hálfu ári síðan.
PSG hefur ekki enn tilkynnt um brottreksturinn en heimildarmenn ESPN segja að ákvörðun hafi verið tekin í morgun.

Christophe Galtier er líklegastur til að taka við Pochettino eftir að Zinidine Zidane og Jose Mourinho gáfu PSG afsvar.

Julen Lopetegui, Marcelo Gallardo og Ruben Amorim eru einnig á lista hjá PSG.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.