Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, segir að KR eigi að vera með fleiri stig í Bestu deildinni.
KR er í fimmta sæti deildarinnar eins og er með 14 stig eftir átta leiki. Arnar býst við því að KR-ingar séu að fara að komast á skrið, gögnin bendi til þess.
„KR er búið að heilla mig mikið í spilamennsku," sagði Arnar.
„Þeir hafa verið gagnrýndir verulega, en trúið mér að það er bara tímaspursmál hvenær þessi vél fer í gang. Þeir eiga að vera með fleiri stig en þeir eru með."
KR á leik í kvöld gegn sínum gömlu erkifjendum í ÍA. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Hægt er að hlusta á umræðuna í útvarpsþættinum hér fyrir neðan.
Athugasemdir