Fotbolti.net
15.07.15 - 00:14
Ívan Guðjón Baldursson

Björgvin Karl: Það voru mistök hjá dómaranum

Auglýsing
Björgvin Karl: Það voru mistök hjá dómaranum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
Björgvin Karl Gunnarsson, þjálfari KR, var svekktur með tap gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar í Pepsí-deild kvenna fyrr í kvöld.

Ana Victoria Cate gerði eina mark leiksins í fyrri hálfleik og tryggði Stjörnunni þannig þrjú stig.
„Ég er hundsvekktur. Við áttum mikið í þessum leik, við vorum að berjast vel og stelpurnar stóðu sig virkilega vel og það er gamall að sjá þær stíga svona vel upp, loksins,\" sagði Björgvin Karl eftir leikinn.

Margrét María Hólmarsdóttir slapp ein innfyrir vörn Stjörnunnar í leiknum en dæmd var rangstæða sem Björgvin Karl segir hafa verið mistök.

„Það voru mistök hjá dómaranum. Ég er ósáttur með það eins og margt en heilt yfir er ekkert hægt að kvarta.\"

Björgvin Karl hefur þurft að spila á mörgum mönnum í Pepsi-deildinni í sumar og kennir meiðslum og þreytu um.

„Það hafa verið meiðsli og svo er mannskapurinn líka þreyttur. Þetta eru ungar stelpur sem eru margar að spila sitt fyrsta tímabil í Pepsí og það tekur á.

„Við viljum ekkert vera að tapa reglulega fyrir Val þannig að við viljum allavega gefa þeim góðan leik.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.