Frank Lampard sem er fyrrum leikmaður og núverandi þjálfari Chelsea í ensku úrvalsdeidinni hefur fullt traust frá Oliver Giroud framherja Chelsea.
Chelsea lék sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu þegar liðið mætti New England Revoloution í 0 - 3 sigri.
Lampard skrifaði undir þriggja ára samning hjá Chelsea þar sem hann lék sjálfur á miðjunni í 13 ár.
Oliver Giroud sagði í viðtali við Radio 5 live sports. „Við er höfum verið að æfa vel og mikið."
„Ég held að Lampard sé rétti maðurinn, hann er goðsögn hjá Chelsea."
Chelsea var sett í félagsskiptabann af FIFA og má því ekki kaupa leikmann næstu tvo glugga auk þess yfirgaf Eden Hazard félagið í sumar og fór í Real Madrid.
Athugasemdir