Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 15. júlí 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Sneijder íhugar að taka skóna af hillunni
Wesley Sneijder
Wesley Sneijder
Mynd: Getty Images
Fyrrum hollenski landsliðsmaðurinn Wesley Sneijder er að íhuga að taka skóna af hillunni og byrja að spila á nýjan leik.

Hinn 36 ára gamli Sneijder á 134 landsleiki að baki fyrir Hollendinga en hann lék meðal annars með Ajax, Real Madrid og Inter á sínum tíma.

Sneijder spilaði síðast með Al-Gharafa í Katar fyrir ári síðan en hann var ekki í sínu besta formi undir lok ferilsins þar.

Sneijder er núna byrjaður að æfa með áhugamannaliði DOS Holland Stichtse Boys til að komast aftur í form og missa nokkur kíló.

Hollenskir fjölmiðlar segja að Sneijder muni í kjölfarið mögulega semja við heimafélag sitt FC Utrecht sem spilar í hollensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner