Fotbolti.net
15.07.24 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Messi brast í grát á bekknum

Messi brast í grát á bekknum
Canon

Mynd: Getty Images

Lionel Messi, fyrirliði argentínska landsliðsins, meiddist í leik sem var líklega hans síðasti í Copa America-keppninni er Argentína vann Kólumbíu, 1-0, í úrslitum í nótt.
Messi meiddist seint í fyrri hálfleiknum en gat haldið leik áfram og mætti því aftur inn í síðari hálfleikinn.

Þegar rúmur klukkutími var búinn meiddist hann í annað sinn er hann missteig sig er hann var að hlaupa til baka í vörn.

Hann gat ekki haldið leik áfram og var því skipt af velli, en þegar hann settist á bekkinn brast hann í grát.

Tilfinningarnar báru hann ofurliði enda sorglegur endir í síðasta leik hans í þessari stærstu keppni Suður-Ameríku.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.