Rice klár í slaginn - „Verður ekki stærra"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Declan Rice er klár í slaginn og er í byrjunarliði enska landsliðsins í undanúrslitum á HM gegn Argentínu í kvöld.
Rice hefur verið að kljást við veikindi í vikunni og þurfti að fara af velli í hálfleik þegar England vann Noreg í 8-liða úrslitum.
„Það er vika síðan þetta hófst allt saman. Ég er hundrað prósent klár núna. Mér líður mjög vel og endurnærður, klár í slaginn," sagði Rice fyrir leik kvöldsins.
„Þetta verður ekki stærra en þetta. Þetta er stærsta keppnin í fótboltanum, að spila gegn núverandi meisturum. Þvílíkur leikur og þvílíkt tækifæri og við erum tilbúnir fyrir það," sagði Rice.
„Það snýst um að vera andlega sterkir allan leikinn og byggja upp inn í leikinn. Við vitum hvað Argentína er að gera. Við höfum horft á leiki þeirra og myndskeið. Við erum tilbúnir með leikáætlun. Við erum tilbúnir að fara út og komast í þennan úrslitaleik.“