Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   mið 15. ágúst 2018 22:00
Egill Sigfússon
Gaui Bald: Ég elska að skora mörk, ætla ekki að fara ljúga öðru
Gauji var besti maður vallarins í kvöld
Gauji var besti maður vallarins í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan sigraði FH 2-0 í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á Samsung-vellinum í kvöld og eru komnir í úrslitaleikinn. Guðjón Baldvinsson leikmaður Stjörnunnar sagði það hafa verið markmið þeirra og hlakkar til að klára sumarið í séns á tveim titlum.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  0 FH

„Þetta er alveg frábært, við erum búnir að stefna að því í allt sumar að komast í bikarúrslitin. Það gefur okkur mikla tilhlökkun fyrir restina af tímabilinu."

Guðjón skoraði og lagði upp í kvöld og þegar undirritaður spurði hvort honum hefði ekki verið sama hver skoraði svo lengi sem þeir unnu sagði Guðjón að það væri ekki rétt því hann er framherji sem elskar að skora mörk.

„Ég segi það nú ekki alveg, ég er ekki búinn að skora nógu mikið í sumar og það er alltaf gaman fyrir senter að skora. Það gefur mér sjálfstraust og ég ætla ekkert að ljúga því að ég hafði mjög gaman að því."

Stjarnan er í dauðafæri á titli í sumar, eru í hörku toppbaráttu í deildinni og komnir í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Guðjón segir það algjörlega undir þeim komið að klára þessa leiki sem eftir eru.

„Við erum búnir að koma okkur í ansi vænlega stöðu á báðum stöðum. Þetta er undir okkur komið og ef við klárum þá leiki sem eru eftir og standa uppi með eina dollu þegar sumarið er á enda."

Guðjóni fannst þeir hafa leikinn í höndum sér allan leikinn og sagði liðið vera gríðarlega skipulagt í sumar og verði bara að halda því áfram og þá standa þeir uppi með titil í haust.

„Við vorum bara solid varnarlega og héldum skipulagi vel, mér fannst við alltaf hafa tökin þótt þeir hafi verið meira með boltann á tímabili. Þegar við erum svona skipulagðir er erfitt að komast í gegnum okkur og við verðum bara að halda svona áfram."
Athugasemdir
banner
banner
banner