Fotbolti.net
15.08.23 - 11:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Keflavík fær króatískan Palestínumann (Staðfest)

Keflavík fær króatískan Palestínumann (Staðfest)
Canon

Mynd: NK Dubrava

Keflavík hefur fengið liðsstyrk fyrir endasprettinn í Bestu deildinni. Til félagsins er kominn Muhamed Alghoul sem er króatískur Palestínumaður.

Alghoul er 27 ára gamall og er fæddur í Króatíu en er einnig með palestínskan ríkisborgararétt.
Hann er skráður sóknarsinnaður miðjumaður á Transfermarkt einnig spilað á kantinum. Á sínum tíma lék hann einn leik með U20 landsliði Króatíu og svo einn með U21 landsliðinu.

Hann hefur spilað í Króatíu, Sviss, Rúmeníu og Egyptalandi á sínum ferli og kemur frá Wadi Degla í Egyptalandi.

Hann hefur spilað í efstu deild í Króatíu og Rúmeníu á ferlinum. Mest hefur hann þó spilað í næst efstu deild í Króatíu. Þar á hann samkvæmt Transfermarkt tólf mörk og fjórar stoðsendingar í 65 leikjum.

Keflavík er í botnsæti Bestu deildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.