Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. september 2020 15:24
Magnús Már Einarsson
Branislav Ivanovic til WBA (Staðfest)
Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion hefur samið við varnarmanninn reynda Branislav Ivanovic.

Nýliðarnir gerðu eins árs samning við Ivanovic.

Þessi 36 ára gamli Serbi var samningslaus en samningur hans hjá Zenit St Pétursborg í Rússlandi rann út í sumar.

Ivanovic spilaði við góðan orðstír með Chelsea á sínum tíma þar sem hann varð þrívegis enskur meistari en hann er nú mættur aftur í ensku úrvalsdeildina.

„Ég hef mikinn metnað og vil sanna marga hluti. Ég mun leggja mig allan fram fyrir liðið," sagði Ivanovic eftir undirskrift.


Athugasemdir
banner
banner