Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. október 2021 22:31
Brynjar Ingi Erluson
Dani Alves vill fara til Barcelona
Dani Alves vill fara aftur til Barcelona
Dani Alves vill fara aftur til Barcelona
Mynd: Getty Images
Brasilíski hægri bakvörðurinn Dani Alves vill ganga aftur til liðs við Barcelona en það er spænski miðillinn Onze sem greinir frá.

Alves er 38 ára gamall og án félags sem stendur eftir að hann gerði samkomulag við brasilíska félagið Sao Paulo um að rifta samningnum.

Brasilíumaðurinn hefur þegar greint frá því að honum liggur ekkert á að semja við nýtt félag en hann vill þó komast aftur í Evrópuboltann.

Samkvæmt Onze þá hefur Alves haft samband við Barcelona og boðist til að spila fyrir félagið. Alves spilaði með félaginu frá 2008 til 2016 og vann 23 bikara með liðinu.

Hann fer ekki fram á háar launakröfur og yrði það ekkert vandamál en félagið á þó eftir að taka ákvörðun.

Alves ætlar að halda sér í standi fram að HM sem fer fram í Katar á næsta ári. Þessi magnaði leikmaður er með 43 titla í safninu og er sá sigursælasti í sögunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner