fös 15. október 2021 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nuno: Harry Kane er meira en bara mörk
Harry Kane
Harry Kane
Mynd: Getty Images
Harry Kane hefur átt erfitt uppdráttar í upphafi tímabils með Tottenham en Nuno Santo, stjóri Tottenham, segir að það sé meira í fyrirliðanum en bara mörk.

Kane hefur ekki skorað í deildinni til þessa og er pressa fyrir markahrókinn að skora mörk.

„Harry þekkir þessa pressu og hún er eðlileg. Við vitum að Harry er miklu meira en bara mörk, hann gerir fullt af hlutum fyrir liðið," sagði Nuno.

„Harry er frábær leikmaður, einn af þeim bestu og mörkin munu koma náttúrulega."

Tottenham mætir Newcastle á sunnudag og vonast Nuno til þess að leikmenn frá Suður-Ameríku geti tekið þátt í leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner