Fotbolti.net
15.10.23 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Rangers velur á milli Clement og Muscat í dag

Rangers velur á milli Clement og Muscat í dag
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports greinir frá því að skoska stórveldið Rangers muni velja nýjan knattspyrnustjóra í dag til að taka við keflinu af Michael Beale sem var rekinn fyrir tveimur vikum.
Beale var látinn fara eftir hrikalega byrjun Rangers á nýju tímabili, en liðið fór í gegnum mikið umbreytingasumar þar sem mikilvægir leikmenn yfirgáfu klúbbinn og eiga nýju leikmennirnir eftir að stíga upp til að fylla í skarðið eins og búist var við.

Stjórn Rangers kennir Beale um slakt gengi á upphafi tímabils þar sem liðið tapaði þremur af sjö fyrstu deildarleikjunum áður en hann var rekinn.

Steven Davis er tekinn við liðinu til bráðabirgða en félagið vill ráða nýjan stjóra inn sem fyrst og eru tveir sem koma enn til greina eftir viðræður síðustu vikna.

Þeir eru Philippe Clement og Kevin Muscat og verður annar hvor þeirra ráðinn í dag. Sá fær að kynnast leikmannahópinum á morgun og taka við stjórn á æfingum frá og með þriðjudeginum, áður en hann stýrir Rangers í deildarleik gegn Hibernian næsta laugardag.

Clement er falur á frjálsri sölu eftir að hafa unnið belgísku deildina þrjú ár í röð með tveimur mismunandi félagsliðum. Hann var ráðinn yfir til AS Mónakó í janúar 2022 en var rekinn í júní, eftir eitt og hálft ár, eftir að hafa mistekist að tryggja liðinu sæti í Evrópukeppni, þrátt fyrir að hafa verið með yfir 50% sigurhlutfall.

Muscat vann þrennuna sem leikmaður Rangers tímabilið 2002-2003 og hefur gert frábæra hluti sem aðalþjálfari hjá Melbourne Victory og Yokohama F. Marinos, þrátt fyrir misheppnaða raun hjá Sint-Truiden í Belgíu þar á milli.

Muscat tók við starfinu hjá Yokohama af Ange Postecoglou, sem fór til Celtic og starfar hjá Tottenham í dag. Muscat virtist kveðja stuðningsmenn Yokohama eftir síðasta leik liðsins fyrir landsleikjahlé, sem gefur sterklega til kynna að hann hafi nú þegar verið valinn sem arftaki Beale.

Hver sem verður ráðinn verður fjórði knattspyrnustjórinn sem félagið ræður til sín á tveimur árum, eftir að Steven Gerrard skipti til Aston Villa í nóvember 2021. Giovanni van Bronckhorst tók við af honum og var rekinn til að skapa pláss fyrir Beale, sem hefur einnig verið rekinn.
Rangers velur á milli Clement og Muscat í dag
Canon

Mynd: Getty Images

Rangers velur á milli Clement og Muscat í dag
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.