Fotbolti.net
15.10.23 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Stuðningsmenn Galatasaray svindluðu á miðasölukerfi Man Utd

Stuðningsmenn Galatasaray svindluðu á miðasölukerfi Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Manchester United er búið að viðurkenna að um 2000 stuðningsmönnum Galatasaray hafi tekist að kaupa miða á Old Trafford þrátt fyrir að útivallarmiðarnir hafi verið uppseldir.
Galatasaray vann leikinn eftir laglega endurkomu og fögnuðu leikmenn fyrir framan nokkur þúsund stuðningsmenn, sem vakti spurningar varðandi miðafjöldans sem var úthlutaður til Tyrkjanna.

Stuðningsmennirnir nýttu sér hjálp tölvuforrits sem tókst að plata miðasölukerfið á vefsíðu Man Utd til að kaupa um 2000 miða í stuðningsmannahluta heimamanna.

Þetta var fyrsti sigur í sögu Galatasaray á enskri grundu og vöktu skemmtileg myndbrot frá lokamínútum leiksins mikla athygli á netheimum, þar sem myndavélarnar beindust að litlum og dreifðum stuðningsmannahópum Galatasaray sem fögnuðu innan um stuðningsmenn Rauðu djöflanna.

Man Utd var gagnrýnt fyrir að selja svona mikið af útivallarmiðum en Sam Kelleher, yfirmaður almannatengsla hjá félaginu, staðfesti að um mistök hafi verið að ræða. Í stað þess að vera 2000 talsins voru í heildina um 4000 stuðningsmenn Galatasaray mættir á völlinn.

Þeim var ekki öllum hleypt strax inn við hliðin en eftir einhverjar tafir var tekin ákvörðun um að hleypa öllum inn sem höfðu keypt miða til að forðast mögulega áhættu sem gæti skapast fyrir aðra áhorfendur.
Stuðningsmenn Galatasaray svindluðu á miðasölukerfi Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.