Ruben Amorim til Man City? - Alphonso Davies á óskalista Man Utd - Verðmiðinn á Antony - Barcelona á eftir tveimur leikmönnum Chelsea
   þri 15. október 2024 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lotito um Greenwood: Viljum ekki málaliða
Greenwood er búinn að skora fimm mörk og gefa eina stoðsendingu í sjö fyrstu leikjunum á nýju tímabili.
Greenwood er búinn að skora fimm mörk og gefa eina stoðsendingu í sjö fyrstu leikjunum á nýju tímabili.
Mynd: Getty Images
Fótboltamaðurinn umdeildi Mason Greenwood átti magnað tímabil með Getafe í spænska boltanum á síðustu leiktíð.

Hann var afar eftirsóttur í sumar þar sem Lazio og Marseille kepptust um að krækja í þennan sóknarleikmann og hafði franska félagið betur að lokum.

Marseille borgaði um 30 milljónir evra fyrir Greenwood auk árangurstengdra aukagreiðslna sem geta farið í háar upphæðir. Claudio Lotito forseti Lazio segir að Greenwood hafi elt peningana til Marseille.

„Við sjáum alls ekki eftir því að hafa misst af Mason Greenwood í sumar. Við viljum ekki fá málaliða til liðs við okkur," sagði Lazio

„Honum líður vel hjá Marseille. Þetta var hans ákvörðun og við sættum okkur við hana. Við viljum ekki fá málaliða til okkar, við viljum bara fá inn leikmenn sem kjósa að spila fyrir Lazio."
Athugasemdir
banner