Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 15. nóvember 2020 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Southgate: Kane hefur góðan tíma til að bæta markametið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Harry Kane spilar sinn fimmtugasta A-landsleik fyrir England þegar liðið spilar við Belgíu í Þjóðadeildinni í kvöld.

Hinn 27 ára gamli Kane er í sjötta sæti yfir markahæstu landsliðsmenn Englands frá upphafi, með 32 mörk. Hann er 21 marki á eftir Wayne Rooney og hefur Gareth Southgate landsliðsþjálfari fulla trú á að Kane bæti markametið áður en hann leggur skóna á hilluna.

„Hann er með stórkostlegt markahlutfall með landsliðinu og hefur góðan tíma til að bæta markamet Wayne Rooney," sagði Southgate.

„Það væri magnað afrek en ég veit að hann hugsar ekki mikið út í þetta sjálfur. Harry er alvöru liðsmaður og leggur mikinn metnað í að gera vel fyrir liðið."
Athugasemdir
banner
banner
banner